STUÐLABERG

Upphafið

Hugmyndin að Stuðlabergi kviknaði í fjölskylduferð í Reynisfjöru árið 2019. Hugmyndin var að fanga fegurðina í stuðlabergi ásamt því að viðhalda stílhreinu útliti og notagildi. Borðin eru þrjú og raðast saman eftir smekk. Borðin eru öll jafn stór að yfirborðsflatarmáli en koma í þremur mismunandi hæðum og geta nýst sem hliðarborð, kaffiborð eða sófaborð.

Sendið okkur fyrirspurn til að fá upplýsingar um verð og afhendingartíma.

Draumaborðið þitt

Ekki hika við að hafa samband til að fá Stuðlaberg heim til þín, hannað með þér og eftir þínum þörfum.

Húsgögnin okkar eru handsmíðuð á verkstæði okkar í Reykjavík. Ekki er notast við verksmiðjuferla sem glæðir húsgögnin lífi og tryggir að engin tvö verk eru alveg eins. Hvert húsgagn hefur einstaka þætti og persónulegt handbragð og er því ekki lýtalaust eins og fjöldaframleidd húsgögn.

Við afhendingu fara viðskiptavinir yfir borðin og samþykkja smíðina áður en tekið er við borðunum.

Sendið okkur fyrirspurn til að fá upplýsingar um verð og afhendingartíma.

Stál & HNOTA

Hægt er að fá borðin í eftirfarandi viðartegundum:

  • Hnota

  • Eik

  • Ösp

  • Beyki

Einnig er hægt að senda fyrirspurn um aðrar viðartegundir eða sérsmíði en þá er hægt að breyta stærðum í samráði við okkur.

Rammi undir borðum er smíðaður úr 20x20 mm svartstáli sem er pólýhúðað hjá Pólýhúðun ehf. og kemur óbreytt með svart-mattri áferð en hægt er að óska eftir öðrum litum og Pólýhúðun ehf. býður upp á flesta liti sem finnast í RAL litakerfinu.

Borðið er að óbreyttu meðhöndlað með Rubio Monocoat harðviðarolíuvörn en hægt er að óska eftir öðrum viðarmeðferðum í samráði við okkur.

Ekki er hægt að kaupa stök borð og verkið kemur alltaf í þremur eða fleiri borðum.