Flekamót/skil
Upphafið
“Við flekamót mætast tveir flekar, þar sem annar lútir fyrir hinum og sveigir undir hann…” -www.ferlir.is
Þegar eldgos hófst í Merardölum 2021 varð mér hugsað til þeirra ótrúlegu náttúruafla sem liggja þar að baki og þá kviknaði hugmyndin af Flekamótum/skilum. Borðið er tvískipt og er byggt á flekamótum Evrasíuflekans og Ameríkuflekans þar sem annar fleki borðsins gengur undir hinn og reka þeir hægt í sundur.
Borðið byggir á þessari sameiningu og sundrung með tilheyrandi náttúruvá.
Sendið okkur fyrirspurn til að fá upplýsingar um verð og afhendingartíma.
Draumaborðið þitt
Ekki hika við að hafa samband til að fá Flekamót/skil heim til þín, hannað með þér og eftir þínum þörfum.
Húsgögnin okkar eru handsmíðuð á verkstæði okkar í Reykjavík. Ekki er notast við verksmiðjuferla sem glæðir húsgögnin lífi og tryggir að engin tvö verk eru alveg eins. Hvert húsgagn hefur einstaka þætti og persónulegt handbragð og er því ekki lýtalaust eins og fjöldaframleidd húsgögn.
Við afhendingu fara viðskiptavinir yfir borðin frá okkur og samþykkja smíðina áður en tekið er við þeim.
Sendið okkur fyrirspurn til að fá upplýsingar um verð og afhendingartíma.
Stál & HNOTA
Hægt er að fá borðið í eftirfarandi viðartegundum:
Hnota
Eik
Ösp
Beyki
Einnig er hægt að senda fyrirspurn um aðrar viðartegundir eða sérsmíði en þá er hægt að breyta stærðum í samráði við okkur.
Rammi undir borðinu er smíðaður úr 20x20 mm svartstáli sem er pólýhúðað hjá Pólýhúðun ehf. og kemur óbreytt með svart-mattri áferð en hægt er að óska eftir öðrum litum og Pólýhúðun ehf. býður upp á flesta liti sem finnast í RAL litakerfinu.
Borðið er að óbreyttu meðhöndlað með Rubio Monocoat harðviðarolíuvörn en hægt er að óska eftir öðrum viðarmeðferðum í samráði við okkur.
Hægt er að breyta hlutföllum borðsins að einhverju leyti en þó takmarkast það af því að form þess haldi sér.